Ég sveik lit
Myndasöfn
14.03.2007 11:32:56 / isisin_

Me and my Tolkien

Ég keypti mér myndarlega bók á bókamarkaði perlunnar um daginn. Ég keypti mér raunar tvær myndarlegar bækur en önnur þeirra er þessu bloggi algjörlega óviðkomandi. Hin myndarlega bókin var svo ævisaga Tolkien, skrifuð af einhverjum manni sem ég játa upp á mig sökina að vera búin að gleyma hvað heitir. Ég hef undanfarin kvöld verið að lesa í bókinni og hef rekið mig á nokkra hluti sem mér finnast hljóma kunnuglegir.

Tolkien var mikill tungumálamaður. Hans sterkasta hlið voru tungumálin, og hann hafði brennandi áhuga á sem flestum þeirra. Hann las þau þó betur en hann talaði þau. Ég hef samtals lært 6 tungumál, en sum þeirra ekki eins vel og hin ;) Mín sterkasta hlið er þó tungumálanám og ég hef rosalega gaman af því að læra tungumál. Ég get þó lesið fleiri þeirra heldur en ég get talað.

 Tolkien hafði brennandi áhuga á öllu sem tengdist goðafræði. Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið mig hef ég alla tíð haft brennandi áhuga á goðafræði, og gerði meðal annars tvö stór valfrjáls lokaverlefni í Kvennó um goðafræði. Annað þeirra var stúdentsritgerðin mín.

Tolkien útskrifaðist með tvær gráður úr háskóla í Oxford, nefnilega gráðu í ensku máli og gráðu í bókmenntum. Ef þú skilur ekki hvað þetta hefur með mig að gera skaltu lesa bloggið á undan þessu.

 Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst þetta mjög kúl.

Isis


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 20:59:58 / isisin_

http://blog.central.is/isisin/

Eins og þið hafið eflaust tekið eftir er þetta *ekki* vefslóðin mín. Ég neyddist til að setja þetta bansetta _ fyrir aftan. Hins vegar er ég tilbúin til að fyrirgefa þessari ungu dömu fyrir að hafa hirt vefslóðina mína, þar sem ég rakst á hana í gegn um heimasíðu bókmenntanemenda við Háskóla Íslands, en ég er einmitt mikið að íhuga að taka það nám, og fannst mér afskaplega skondið að rekast á hana þar. Hún er augljóslega smekkmanneskja ;)

Ég sótti um háskólann á meðan ég var veik. Ég sótti raunar um háskólann, þegar ég var undir áhrifum fjögurra mismunandi lyfja. Mér þykir afskaplega skemmtilegt að segja þessa sögu, vegna þess að svarið er venjulega "...og sóttirðu alveg örugglega um rétt?" En ég var nú ekki undir áhrifum þannig að ég vissi ekki hvað ég væri að gera. Ég var bara dofin í fingurgómunum :lol:

Nema hvað að ég sótti um það sem ég var lengi búin að gæla við en hafði aldrei einhvern veginn leyft sjálfri mér að pæla í. Nefnilega enskunám. 90 eininga nám til BA-prófs í ensku, svona til að vera nákvæm. Áfangarnir eru gífurlega spennandi, og ég hlakka ekkert smá til að byrja í skólanum, sérstaklega í breskum bókmenntum, og breskri menningarsögu, en þeir eru báðir á fyrstu önninni minni. Og mig langar til að taka kennaragráðu ofan á enskunámið mitt, vegna þess að ég gæti vel hugsað mér að kenna í framhaldsskóla. En ég er búin að eyða löngum stundum inni á heimasíðu HÍ og skoða leiðir í námi og ég er eiginlega búin að finna annað nám sem mig langar jafn mikið að taka og enskuna, nefnilega almennar bókmenntir. Þeir áfangar eru líka afskaplega girnilegir. Ég get tekið enskunám upp á 60 einingar og tekið bókmenntirnar með upp á 30 sem aukagrein, en ég á nógu erfitt með að gera upp á milli áfanga þegar ég hef 90 einingar að spila úr, ef ég þarf að takmarka mig svona svakalega mikið, þá er ekki mikið eftir þegar ég er búin að draga frá skylduáfangana. Og hvað gera bændur þá?

Ég skal segja ykkur það. Bændur taka tvær gráður. Ég er eiginlega alveg búin að ákveða mig. Nú þarf ég bara að spurja námsráðgjafann hvort ég megi það :$ Veit í rauninni ekki einu sinni hvort það er hægt. En mig langar bara jafn mikið í báðar greinarnar, og ég verð eiignlega að taka þær báðar og ekkert múður. Það verður erfitt, en ég ætla mér að láta það ganga upp. Ég held ég verði eilífðarstúdent, það er svo margt sem mig langar til að gera og læra.

Ég og mamma suðum saman ágætis plan í dag. Ef ég sæki um námsstyrk hjá LÍN, og verð svo bara í háskólanum þangað til ég er áttræð, þá þarf ég ekkert að byrja að borga, fyrr en ég dey. Verð bara að passa mig að skilja ekki eftir mig neina ættingja sem gætu þurft að borga fyrir mig. Skothelt plan. Nei, annars, held ekki :P

 Æji, ég veit ekki. Leyfir háskólinn fólki að taka tvær gráður í einu? Í algjöru draumakerfi, mætti ég blanda öllu náminu saman og taka einhverja svona allsherjargráðu :p

 Isis allsherjarstúdent


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 18:19:23 / isisin_

Ónefnd færsla

Ég veit ekki almennilega hvað égá að skrifa um. Venjulegast er það merki um að maður eigi ekki að vera að blogga, en mig langar til að blogga og nóg er svo sem að tala um. Ég virðist bara eiga í erfiðleikum með orð í dag, þau koma asnalega út það er að segja. Ég get ekki komið því sem ég vil tala um í orð án þess að það hljómi asnalega.

Það sem er í gangi er hins vegar alveg merkilegt. Það uppgötvaðist fyrir einskæra heppni að rót allra minna magavandamála er sú að mig skortir B12 vítamín. Það getur leitt til blóðleysis og annarra misskemmtilegra (og -hættulegra) vandamála, en ég er mjög blóðmikil og fín, vantar bara þetta vítamín. Vítamínskorturinn getur verið vegna einhæfrar fæðu en kjöt, fiskur og mjólkurvörur eru helstu uppsprettur B12 vítamína. Síðan ég veiktist í október hef ég hins vegar skorið mjólkurvörur algjörlega út úr matarræði mínu, og ég missi alltaf af fisk heima hjá mér vegna þess að ég vinn vaktavinnu. M.ö.o. það eina sem ég hef borðað þar sem ég gæti mögulega fengið smá B12 vitamín, er sunnudagssteik og svoleiðis :p Ég hef heldur ekki borðað skyndibitamat, en mér skylst að það sé B12 vítamín í hamborgurum. Ég hef það samt bara af netinu og vil því ekki treysta á það. En semsagt, ég er ekki með bólgur í maganum, öll líffærin mín virka fínt, ég er ekki járnlítil, ég er ekki með sníkjudýr, sýkingu eða veiru í maganum á mér, þannig að mér er farið að lítast vel á þessa 'einhæft matarræði' hugmynd. En það getur semsagt verið eitthvað að mér sem gæti verið að hindra upptöku efnisins úr fæðunni, þannig að læknirinn á eftir að skoða mig eitthvað smá meira til að ganga úr skugga um að það sé ekkert að mér svoleiðis. Ég veit samt ekki alveg hvað það ætti að vera. En ég er enginn læknir :p

Svo er hálsinn á mér allur að koma til. Á miðvikudagskvöldið (eftir að ég skrifaði síðustu færslu) rifnaði ofan af einhverju í hálsinum á mér og ég stóð og spjó út úr mér blóði í baðherbergisvaskinn. Það var hringt á sjúkrabíl en þegar hann kom var blæðingin að mestu gengin niður og mamma og pabbi fengu að keyra mig niður á slysó sjálf. Þeir sáu enga ástæðu til að brenna fyrir fyrst þetta var hætt en heldu mér í tvo tíma til að fylgjast með mér. Eftir það fór ég heim þar sem var vakað yfir mér (bókstaflega) fyrstu nóttina. Nú er hins vegar skánin farin að fara ofan af sárunum, og lítur mjög vel út, NEMA þar sem rifnaði á miðvikudaginn. Þar er ég nefnilega með ferskt sár, með hrúðri yfir, og blæðir þar reglulega úr. Ég hef nú ekki miklar áhyggjur af því, en það segir sig samt sjálft að það er lengur að gróa en hitt, og því er ekki víst að ég geti farið að borða almennilegan mat í næstu viku eins og venjulegt fólk getur. Ég gæti þurft að bíða mun lengur. Og mig sem er farið að dreyma pizzu.

Á hinn bóginn hætti ég á verkjalyfinu mínu á morgun, og ég er orðin helvíti fín og lítið um verki núna og ég fékk meira að segja að fara út í klukkutíma í dag. Ég hef frekar lítið úthald, og verð mjög fljótt þreytt en mamma fór með mig að versla í dag og keypti handa mér rosa sætan bol með kirsuberjum á, og svo borgaði hún af einhverri ástæðu fyrir mig nammið sem ég var að kaupa mér í hagkaup og límmiðana mína. Svo keypti ég mér sjálf sumarskó á útsölu í Toppskó-outlettinu og er bara hæstánægð með þá enda kostuðu þeir 2500 krónur og eru hvítir með fiðrildum á. Mjög stelpulegir og mjög sumarlegir. Það var frábært að komast aðeins út og anda að sér fersku lofti og eyða deginum í eitthvað annað en að glápa á buffy. Svo bakaði mamma handa mér pönnsur og ég gat borðað þrjár, sem er frábært þar sem ég hef bara borðað kaldar 1944 kjötbollur í þrjá daga. Ég er svo hress ða ég er að hugsa um að keyra sjálf niður á vídjóleigu á eftir og leigja mér eitthvað skemmtilegt að horfa á. Buffy er orðin þreytt.

Ég komst nefnilega að afskaplega sorglegri niðurstöðu áðan. Ég er með ákveðin athyglisbrest (ógreindan reyndar og ég efast um að þetta teljist sem 'brestur') sem gerir það að verkum að ég get ómögulega einbeitt mér að því að horfa bara á þættina sem ég er að horfa á. Ég verð alltaf að spila Solitaire eða FreeCell á meðan. Um daginn fór ég að skoða sögu mína í FreeCell, og ég hef spilað þar 2000 leiki.. Þetta tel ég kalla á einhverja tilbreytingu. Enda hef ég klárað heila Scrubs seríu, heila Buffy the Vampire seríu, heila One Tree Hill seríu, og hálfa aðra Buffy seríu í veikindum mínum. Svo gaf Addi mér nýju simpson seríuna, og ég hef ekki einu sinni komist í að horfa á hana. Aðeins of mikið.

 Tjah, ég átti allavega ekki í erfiðleikum með að koma orðunum frá mér. Þetta eru nokkuð mörg orð. En ég er farin núna og ég lofa aðnæst þegar ég skrifa þá verður það eitthvað málefnalegra eldur en þetta :)

 Svanga Isis


» 0 hafa sagt sína skoðun